Vertu með í
vistvænum iðngarði

Ný vistvæn nálgun í atvinnuuppbyggingu

Nú hefur nýtt atvinnusvæði í Flóahverfi á Akranesi verið sérstaklega skilgreint sem vistvænir iðngarðar. Því gefst vaxandi fyrirtækjum nú einstakt tækifæri til að byggja upp starfsemi sína í fyrirmyndarumhverfi og í takt við nútímakröfur um umhverfismarkmið.

Vistvænir
iðngarðar

Nú er hafin uppbygging á vistvænum iðngörðum á Akranesi eru þeir fyrstu sinnar tegundar hér á landi.
Iðngarðarnir verða byggðir upp með hliðsjón af alþjóðlegri  umgjörð (International Framework) um innleiðingu á vistvænum iðngörðum (EIP).  Lönd eins og Danmörk, Frakkland og mörg fleiri hafa nýtt lykilþætti regluverksins um vistvæna iðngarða til að stuðla að sjálfbærnifyrirtæki á sjálfstæðu markaðssvæði sem er til þess fallin að bæta samkeppnishæfni iðnaðar/framleiðslu í takt við umhverfismarkmið og kolefnisjöfnun. 

Vistvænir iðngarðar munu rísa í Flóahverfi á Akranesi. Flóahverfi er vel staðsett rétt utan þéttbýliskjarna Akraness og aðeins um 200 metra frá stofnbraut. Frá Flóahverfi er um 30 mín akstur til Reykjavíkur. 

Merkjaklöpp þekkir vel ýmis vandamál tengd skipulagsleysi á illa hirtum atvinnusvæðum á Íslandi og hefur fyrirtækið leitað lausna í þeim málum. Svarið við þessum vandamálum eru vistvænir iðngarðar en skipulag þeirra og regluverk tekur til margra þátta með það fyrir augum að halda utan um fyrirmyndar atvinnusvæði. Sérstök áhersla er þar lögð á umhverfismarkmið, þarfagreiningu og tillitsemi milli fyrirtækja á svæðinu.
„Kröfurnar verða ekki íþyngjandi fyrir fyrirtækin heldur mun þetta styðja enn betur við fyrirtækin í þeirra starfsemi og auka á trúverðugleika þeirra hvort sem þeirra þjónusta nær til innanlands eða alþjóða markaðar. Við erum ánægð með að hefja samstarf með frumkvöðlum sem deila hugmyndum bæjarstjórnar um eflingu atvinnulífs á Akranesi. Samningurinn við Merkjaklöpp ehf. er því frábært upphaf þessarar vegferðar og við hlökkum til samstarfsins.“ – Segir Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraneskaupstaðar

Hafa samband

Takk fyrir að heimsækja vefsíðuna okkar. Óskir þú frekari upplýsinga þá viljum við endilega heyra frá þér. Hér til hægri getur þú fyllt inn í formið og við höfum samband um hæl.

Þessi vefsíða notar vefkökur (cookies) til að bæta upplifun þína. Með því að halda áfram samþykkir þú stefnu okkar um vefkökur